7.6.08

Tónlistarsmekkur okkar á Melum 1

Ég fjallaði einhvern tíma um fegurðarviðmið okkar á Melum 1 (í október 2006). Nú ætla ég að lýsa aðeins tónlistarsmekk okkar. Hann, eins og fegurðarviðmið okkar, var töluvert litaður af skoðunum húsmóðurinnar á heimilinu. Við vorum ekki mikið fyrir "sinfóníur", en það orð notuðu Íslendingar þá sem samheiti yfir klassíska tónlist án söngs. Léttur óperusöngur fannst okkur nokkuð skemmtilegur, ef lögin voru kunnugleg og góðir söngvarar sungu. Miklir skrækir í óperusöngkonum þóttu okkur ekki fagrir. Það minnir mig á það sem tengdamóðir mín sagði mér að faðir sinn hefði einhvern tíma sagt þegar hann heyrði í óperusöngkonu: "Svona píningur ætti ekki að líðast."

Við höfðum gaman af flestum íslenskum sönglögum, þessum sem voru alltaf og eru enn "síðasta lag fyrir fréttir". Og svo voru það auðvitað dægurlögin. Ég held að Haukur Mortens hafi verið númer eitt hjá mömmu. Kannski var Raggi Bjarna of gæjalegur fyrir hennar smekk, hins vegar dáði eldri bróðir minn Ragga mjög. Af söngkonum hafði Ellý vinninginn. Ég man að mamma og Lilja, kona Sigga frænda, ræddu það einhvern tíma hvor þeim þætti betri, Ellý eða Helena, og mér fannst merkilegt að Lilju fannst Helena betri! Okkur fannst líka Óðinn Valdimarsson voða góður söngvari. Gaukar eins og Ómar Ragnarsson voru ekki hátt skrifaðir. Svo voru smásöngvarar sem dúkkuðu upp með eitt og eitt lag og okkur (ekki síst mömmu) þóttu hræðilegir. Í þeim flokki var t.d. sá sem söng "Ó María" fyrstur Íslendinga. Þorvaldur Halldórsson var dæmdur hálfgerður gaulari, þar hefur sjálfsagt "Á sjó" haft sitt að segja, það hálfdrap þjóðina á endanum; Vilhjálmur Vilhjálmsson fannst okkur mun betri.

Hvað um útlenda söngvara og sveitir? Elvis var ekki sérlega vinsæll hjá okkur. Kannski var það í og með vegna þess að töluvert var um myndir af honum í blöðunum og okkur (þ.e.a.s. mömmu) fannst hárgreiðslan og klæðnaðurinn í djarfasta lagi. Frank Sinatra þótti okkur voða sætur þegar hann söng með Nancy dóttur sinni.

Svo komu Bítlarnir. Ég átti erfitt með að mynda mér sjálfstæða skoðun á þeim í fyrstu því þar var ég eins og milli tveggja elda. Annars vegar voru jafnaldrarnir sem voru alveg heillaðir og svo var hún mamma, sem var ekkert að skafa utan af því: "Eiga þetta að heita karlmenn?" spurði hún "þetta hljómar eins og geldingar!" Síða hárið hefur örugglega ekki bætt úr skák. Eins og menn geta ímyndað sér dæmdi hún Hljóma með söngvaranum Engilbert Jensen með sama snaggaralega hætti. Aðrar hljómsveitir íslenskar sem komu á eftir Hljómum fengu áþekkan dóm.

Í tónlist vorum við eingöngu neytendur, og takmörkuð af útvarpinu, því plötuspilari var ekki til á heimilinu, fyrir utan ferðaspilara Himma, sem hann keypti eitt sumarið, en staldraði ekki lengi við, frekar en eigandinn. Við sungum lítið sjálf, pabbi trallaði stöku sinnum "sjúddi rari rei" og mamma söng einungis óvart, ef hún varð t.d. upptekin við vinnu og gleymdi sér. Við trúðum því sem sé nær öll að við værum laglaus, en kannski misjafnlega slæm, um það er enn deilt.

Sem betur fer eru nú aðrir tímar, allir eru hvattir til að syngja, lagleysi virðist ekki til þegar nánar er að gáð og flest börn geta fengið kennslu í tónlist ef þau hafa áhuga á því.

Web Counter

2 Comments:

At 09 júní, 2008, Anonymous Nafnlaus said...

Sæl og blessuð frænka mín.
Hér verð ég að leggja orð í belg.
Einn skelfilegasti dægurlagatexti sögunnar: Nonni, Nonni, Nonni þú ert ungur enn......sem mig minnir að Guðbergur Auðunsson hafi sungið.
Þar var mamma þín mér mjög sammála.
Hann snéri sér sem betur fer að öðru listformi. Svo var Upp undir Eiríksjökli mjög tregablandinn. Ef við rifjum upp útvarpsþættina, þá voru náttúrulega óskalög sjómanna og sjúklinga, í sjúklingaþættinum ca frá 1964/65 þá voru textar sem Þórunn Frans orti og Ellý söng mjög vinsælir en á sama tíma var Siguður Ólafsson með hressari söng í sjómannaþættinum. Við systur syngjum mörg þessara laga í hópi vaskra meyja og eftir því sem árin líða held ég mest upp á Erlu Þorsteins og Helenu af söngkonunum en heillast alltaf meira af Vilhjálmi en Þorvaldi kannski því hann söng Vor í Vaglaskógi sem er eitt af mínum uppáhaldslögum. Af útlenskum hafði maður ekki mikið að segja nema í Lögum unga fólksins þá voru náttúrlega Bítlarnir fyrirferðamestir en þegar við vorum í Reykjaskóla og Jonni Ottós söng með skólahljómsveitinni öll Clearwater lögin þá fór sjóndeildarhringurinn stækkandi. Ég fæ smá fiðring enn þegar ég heyri þessi lög.
Það væri nú gaman líka að rifja upp útvarpssögurnar og bókasmekk heimilisfólksins, það kemur kannski seinna.
Kveðja, og síðbúnar afmælisóskir.
Ína

 
At 10 júní, 2008, Anonymous Nafnlaus said...

Blessuð frænka mín.
Hér verð ég líka að leggja orð í belg. Jú jú Vilhjálmur er og verður alltaf einn af mínum uppáhalds söngvari. En hafiði heyrt Þorvald syngja Drottinn er minn hirðir? td. það er guðdómlegt svo á hann son (heitir einnig Þorvaldur)sem er mjög efnilegur söngvari. Helga hlustarðu á Svanhildi á laugardagskvöldum frá kl 23.00 á gömlu góðu Gufu? Þar spilar hún öll þessu gömlu, og fyrst minnst er á Svanhildi hvernig finnst ykkur hún??? :) :) Lilja og Siggi fóru á ball þar sem Óli Gaukur og Svanhidlur léku fyrir dansi og Lilja talaði um hvað Svnhildur skipti oft um kjóla á meðan dansleiknum stóð. Ji hvað þetta er skemmtileg upprifjun, haltu áfram frænka mín.
Bestu kveðjur í bæinn.
Þóra J. frænka.

 

Skrifa ummæli

<< Home