19.10.06

Varaþynnka

Í texta sem ég er að laga þessa stundina eru þunnar varir öruggt merki um glæpahneigð og illt innræti, dæmi hér:

Svo hvessti hann augun og varir hans urðu eggþunnar. Þá stund var hann ægilegur ásýndum.

Web Counter

3 Comments:

At 19 október, 2006, Anonymous Nafnlaus said...

Kannast viðða... Auður Haralds líka, manstu? Við ættum að stofna aðdáendaklúbb, hvað segirðu um það?

 
At 23 október, 2006, Blogger Kristin Bjorg said...

Ertu komin í rauðu ástarsögurnar eða læknasögurnar eða glæpur og ást?

 
At 23 október, 2006, Blogger Helga said...

Þetta er ætlað yngra fólki og lítið um ást, en krimmum bregður fyrir, eitt af verkum þeirrar góðu konu Enid Blyton. Persónan sem um ræðir er þó Villi ("verndarengill" krakkanna). Varirnar eru svona þunnar af því honum er svo mikið niðri fyrir, að átta sig á "alvarleika" málsins eins og komist er svo fallega að orði nú til dags.

 

Skrifa ummæli

<< Home